Vikan er búin að vera býsna annasöm. Ég hef unnið meira en venjulega enda nóg að gera á nýrri skrifstofu á nýjum stað hjá nýja fyrirtækinu sem ég byrjaði að vinna fyrir um áramótin. Pólitíkin hefur tekið sinn tíma í þessari viku var ég í umhverfismálum og kafa betur ofan í þau. Rifjaði enn og aftur upp hversu ferlega duglegir Hríseyingar eru miðað við okkur hér inn á Akureyri í þeim efnum. Var síðan veðurteppt í dag svo ég komst ekki í vinnuna í MH en samt gat ég unnið til hálf átta í kvöld. Ég er hinsvegar fúl, léttist ekkert og þyngdist um einhver grömm, veit ekki hvenær ég verð búin með þessi fimm kíló sem ég átti eftir um miðjan desember og eru ENNÞÁ eftir. Voðalegur aumingi getur maður verið. En ég verð að viðurkenna það, mér finnst ferlega gaman að hafa mikið að gera og hafa síðan ekkert að gera og svo voða mikið, ekkert þar á milli;-)
« Vanvirðing við menningu | Aðalsíða | Frábær Eurovision! »
Fimmtudagur 16. febrúar 2006
Álit (1)
Já þessar vikur verða stundum dálítið erfiðar. Ég er feginn að það er kominn föstudagur.
Föstudagur 17. febrúar 2006 kl. 11:06
Liðinn er sá tími sem hægt er að gefa sitt álit. Hafðu samband ef þú vilt koma einhverju á framfæri