Í dag fórum við Gísli minn fyrst út í Hrísey þar sem ég hitti gott fólk í kaffi og við ræddum pólitík. Það var gaman að sigla með ferjunni í smá úfnum sjó. Ég náði að mynda talsvert með nýju linsunni minni sem ég hlakka itl að fást við eftir prófkjör. Síðan fórum við að Húsabakka í Svarfaðardal þar sem var kynning á félögum og félagsstarfsemi í bæjarfélaginu en þar er greinilega hægt að fást við gríðarlega margt. Þaðan fórum við síðan til Ólafsfjarðar en Gísli er einmitt þaðan. Skemmtilegur dagur enda brúðkaupsafmælið okkar;-)
« Nýtt útlit | Aðalsíða | Síðustu forvöð »
Sunnudagur 15. október 2006
Álit (1)
sæl, til hamingju með daginn.
kveðja Þury
Miðvikudagur 18. október 2006 kl. 20:02
Liðinn er sá tími sem hægt er að gefa sitt álit. Hafðu samband ef þú vilt koma einhverju á framfæri