Nú er veisluundirbúningur á fullu, hópur saxar grænmeti, flakar fiska og sýður súpur. Aðrir setja upp hljóðkerfi, sumir dúka borð, aðrir undirbúa bækurnar og sumir í sendiferðum. Nokkrir afar laumupúkalegir en aðrir eru bara að leika sér á skíðum eða í búðum. Nokkrir enn á leiðinni norður en flestir komnir.
Þetta verður frábær afmælisveisla sem ég er mjög farin að hlakka til og ekkert annað kemst að í dag;-)
Álit (2)
Og er manni ekki boðið?
Laugardagur 10. mars 2007 kl. 20:17
Ég mundi nú ekki eftir að bjóða helmningnum sem ég vildi fá í veisluna, þú áttir bara að mæta;-)
Mánudagur 12. mars 2007 kl. 00:11
Liðinn er sá tími sem hægt er að gefa sitt álit. Hafðu samband ef þú vilt koma einhverju á framfæri