Ég var að barma mér yfir því að það væri svo dýrt að fá gistingu á ferðalögum þegar Henna benti mér á CouchSurfing þar sem fólk býður fram svefnpláss fyrir ekkert og getur sjálft ferðast á sama máta. Þetta þótti mér snjallt, ef þetta virkaði þá væri virkilega hægt að fara á staði sem mig langar að fara á. Svo ég skráði mig inn í gær og nú sefur danskur strákur á efri hæðinni, stúlka frá Ástralíu kemur á morgun og síðan stúlka frá Spáni í ágúst. Fínt að fá heimsóknir og svo nota ég þetta sjálf þegar ég fer í frí, ekki galið;-)
« Lokahnykkur ljóðagerðarinnar | Aðalsíða | 75 hafa hlutað á Hurt »
Miðvikudagur 2. júlí 2008
Álit (1)
Hæ,
Ekta þú með fullt af fólki út um allt.. Jóa vinkona mín er í þessu og var með þýska stelpu hjá sér um daginn. Jóa býr á Florida ef þu vilt kíkja til hennar :þ
bæ
Friðrika, kjellingin hans Sigga pjúsara
Sunnudagur 6. júlí 2008 kl. 11:58
Liðinn er sá tími sem hægt er að gefa sitt álit. Hafðu samband ef þú vilt koma einhverju á framfæri